Fræga fólkið í Hollywood fer ekki leynt með ást sína á gæludýrum sínum.
Margir af frægustu leikurum veraldar hafa átt gæludýr í mörg, mörg ár og eru leikararnir og konurnar tilbúin að gera hvað sem er til þess að gæludýrunum þeirra líði sem allra best.
Margir söngvarar sem fara í tónleikaferðir um Bandaríkin taka hundana sína með sér hvert sem þeir fara og geta ekki hugsað sér að skilja þá eftir í marga mánuði hjá einhverjum öðrum, þeir leikarar sem eru á “setti” í lengri tíma fá einnig að hafa hundana sína með í för. Það sem er gaman að sjá líka er hversu margir eru duglegir að fara út að ganga með hundana sína-enda góð heilsubót að ganga, fá sér frískt loft og njóta veðurblíðunnar.
Hér að neðan má sjá myndir af frægum leikurum/konum ásamt söngkonum með hundana sína og jú jú það leynist líka einn kattarvinur í hópnum.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig