Oftar en ekki er fræga fólkið duglegt að koma sér á framfæri til að kynna nýjustu afurð sína á tónlistar, kvikmyndar eða sjónvarpssviðinu í tímaritum og viðtölum.
Að koma nánast nakin fram virðist vera orðin einskonar listgrein í Hollywoodheimum og með smá (eða mikilli) hjálp frá Photoshop eru allir vegir færir fyrir þá sem eru ríkir og frægir!
Sumir þurfa reyndar lítið sem ekkert Photoshop eða neita að láta laga myndirnar sínar sem er gott og gilt en hér að neðan eru myndir af nokkrum frægum og flottum fáklæddum á forsíðum tímarita. Þetta er fólk sem gerir hvað sem er fyrir frægðina – og kemur LÍKA nakið fram. Spurning hvort þetta myndi ná vinsældum hér á Íslandi? Nei varla.
Fremst í flokki fer þarna hún Rihanna sem hefur aldrei vílað fyrir sér að fækka spjörum en Sasha Baron Cohen á þó vinninginn í skemmtilegheitum.
Njóttu kroppanna!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig