Einhversstaðar í heiminum eigum við flestöll tvífara og fræga fólkið í Hollywood er engin undantekning.
Sumir gætu verið tvíburar miðað við hversu líkir þeir eru, ótrúlegt hvað sumt fólk sem er alls ekkert skylt getur verið líkt. Hvort þetta er stílistunum, aðgerðum, hársnyrtunum að þakka eða bara hrein tilviljun verður ekki svarað hér.
Kíktu á tvífarana hér að neðan, nokkur “pör” eru sláandi lík!
Victoria Justise og Nina Dobrev eru ansi líkar, þær eru með sama andlitsfall og eins hárgreiðslu, klæða sig líka svipað.
Taylor Swift og Karlie Kloss gætu verið eineggja tvíburar, svo líkar eru þær!
Naya Rivera er líkari Kim Kardashian en systur hennar.
Matt Bomber og Henry Cavill eru mjög líkir enda með sama andlitsfall.
Logan Marshall-Green og Tom Hardy eru sláandi líkir.
Scarlett Johanson og Amber Heard voru kannski aðskildar við fæðingu, nei segi svona!
Taylor Lautner og Kris Humphries eru pínu líkir, ekki mikið samt.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig