Fræga fólkið í Hollywood klæðir sig upp í tilefni hrekkjavökunnar og um síðustu helgi voru partý út um allt þar sem að hver stórstjarnan á fætur annari mætti.
Kim Kardashian mætti að sjálfsögðu í partý með sínum heittelskaða Kanye en hún var klædd sem hafmeyja með ljósa hárkollu og Kanye var “kapteinninn” hennar. Gwen Stefani og Gavin Rossdale voru klædd sem vampírur í hrekkjavökuteiti sem þau héldu sjálf. Jessica Alba og hennar fjölskylda voru klædd sem ofurmenninn “The Incredibles” í partý hjá Gwen. Cristina Aguilera var í flegnum bol og stuttum buxum en kæró var sjóræningi.
Þau Paris Hilton og P.Diddy mættu í Playboy partý og Paris var að sjálfsögðu í flegnu og stuttu eins og vera ber í slíkri veislu. Hin laglega Emma Roberts, frænka Juliu Roberts, ákvað að klæða sig upp sem hin fræga frænka eða eins og karakter hennar í Pretty Woman.
Hér að neðan má sjá myndir af fræga fólkinu á hrekkjavökunni.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig