Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian virðist ekki fá nóg af því að birta myndir af sjálfri sér á Twitter.
Á þriðjudagskvöldið ákvað hún að leyfa aðdáendum sínum að sjá hvernig förðunarfræðingurinn Scott Barnes leggur áherslu á að lýsa andlitið á Kim fyrir myndatöku.
Kim er öll út í hyljara og púðri eftir Scott og sýnir þannig á hvaða hluta andlitsins hann leggur áherslu á til þess að fá lýtalausa húð í andlitinu en Kim sést afar sjaldan ómáluð og fer nánast ekki út úr húsi nema með “smokey eye” förðun.
Síðan að lokum má sjá þegar Scott er búinn að farða Kim og er óhætt að segja að förðunin er æðisleg og lýtalaus og Kim er klár í tökur!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig