Frægu dömurnar í glysborginni eru undir smásjá fjölmiðlanna þegar þær eru ófrískar líkt og önnur misseri.
Þeim er fylgt nánast hvert fótmál og skrifað er um allar líkamsbreytingar þeirra á meðgöngunni. Það er stranglega bannað fyrir frægar dömur að fitna eða breytast eitthvað því það gerist ekki! Ó jú líkaminn breytist en margar konur kunna ekki að klæða sig þegar líkaminn stækkar allt í einu á þverveginn en sumar eru alveg með það á hreinu hvað klæðir þær best þrátt fyrir að vera komnar með smá aukakíló og stóra kúlu framan á sig.
Hvort sem þær eru í þægilegum kjólum, gallabuxum og blazer jakka eða uppstrílaðar fyrir rauða dregilinn þá eru þær algjörar skutlur þessar verðandi mæður.
Skoðaðu myndasafnið af frægum og óléttum skvísum – Þessar kunna þetta.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig