FJölskylda Rihönnu er búin að leggja blessun sína yfir það að Rihanna og Chris Brown gifti sig.
Fjölskyldan segist elska Chris eins og sinn eigin son og þyki afar vænt um hann, þrátt fyrir að hann hafi misstigið sig og lagt hendur á söngkonuna. Pabbi Rihönnu er hlynntur sambandinu og hjónabandinu og margir ættingjar söngkonunnar segja að hann sé “súper gaur”.
Samband þeirra hefur verið heldur betur stormasamt og þau hafa verið sundur og saman undanfarið en Rihanna Twittaði mynd um daginn af tómu rúmi og sagðist vera einhleyp en nokkrum dögum síðar sáust þau saman á körfuboltaleik og virtust innileg og hamingjusöm.
Þá er bara spurning hvað mun gerast hjá parinu árið 2013, ætli að það verði brúðkaup eða ætli að þau hætti endanlega saman?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig