Hollywood fjölmiðlarisinn E! fjallar um brúðkaup Sólveigar Káradóttur og Dhani Harrison (sem er sonur George Harrison) á heimasíðu sinni.
Þar kemur meðal annars fram að Sólveig hafi gift sig í sérhönnuðum kjól frá Stellu McCartney og að brúðkaupið hafi farið fram í suður Englandi.
Meðal frægra gesta voru Paul McCartney, Tom Hanks og Clive Owen. Í fréttinni kemur einnig fram að Sólveig ber nafnið “Sola” erlendis og að Kári Stefánson sé faðir hennar. Þar segir jafnframt að Sola hafi framan af starfað sem fyrirsæta þar til hún nam sálfræði en parið á heima í Los Angeles.
Lestu meira hér á heimasíðu E Online.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig