Þegar þú ert átt móður sem er tískuhönnuður og pabba sem er heimsfrægur knattspyrnumaður þá eru peningar ekki vandamál þegar kemur að því að kaupa föt á þig. Jafnvel þó þú sért aðeins 15 mánaða!
Fataskápur smábarnsinsHarper Seven er metinn vel á yfir tvær milljónir íslenskra króna og inniheldur meðal annars fatnað frá Marc Jacobs, Chloe, Stellu McCartney og Bonpoint. Ein flík á dömuna getur farið yfir 100 þúsund krónur!
Victoria setur Harper Seven ALDREI í sömu fötin tvisvar en Harper er örugglega eitt mest myndaðasta barn í heiminum í dag enda móðurinni fylgt hvert einasta fótmál þegar hún fer út fyrir hússins dyr.
Svei mér þá ef það er ekki lítil tískudíva hér í mótun. Spurning hvort þær Suri Cruise verði eins? Mæður þeirra eru jú vinkonur.
Hér að neðan getur þú skoðað myndasafn af Harper…
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig