Nú þegar tökum á Desperate Housewifes er lokið hefur Eva Longoria snúið sér að öðru verkefni sem er raunveruleikaþáttur sem nefnist “Ready For Love”.
Daman sá sér þó fært að færa aðeins til í dagskránni hjá sér og gaf tímaritinu Amica forsíðuviðtal þar sem hún pósaði í Lanvin silkikjól og var “fótósjoppuð í drasl” eins og sagt er á góðri íslensku.
Hláturinn hennar er alltaf umræðuefni hvert sem hún fer en fröken Longoria skríkir hálfpartinn þegar hún hlær og hljóðin orðin hálfgert vörumerki eða ‘trademark’. Svo sérstakur er þessi hlátur að Eva lenti í því um daginn að vera stödd á veitingastað þar sem kom til hennar kona úr hinum enda salarins, hún hafði þekkt hláturinn!
Sorg á síðasta tökudegi Despó
Eva varð fræg á því að leika í heimsfrægu sjónvarpsþáttunum um aðþrengdu eiginkonurnar. Að hennar sögn var síðasti tökudagurinn gríðarlega erfiður og enginn vildi fara heim til sín en allt tökuliðið og leikararnir fóru og fengu sér í glas eftir síðustu tökurnar og ræddu minnistæð atvik sem gerst höfðu við tökur.
Eva segist einnig eiga eftir að sakna þess að hafa Gabi sem hluta af lífi sínu en karakter hennar var afar hugrökk og gáfuð og alltaf til í að taka áskorunum alveg sama hversu stórar þær voru. En þegar einar dyr lokast opnast þær næstu og skammt er að bíða þar til aðdáendur fá að sjá Evu sjálfa í raunveruleikaþáttum sem fjalla um ástina – og talandi um ástina…
Ólöglegur aldursmunur?
Zac Efron viðurkenndi það á dögunum að hann væri til í að deita leikkonuna og segist hún vera afar upp með sér en hún viti hinsvegar nákvæmlega hvað drengurinn sé gamall og myndi örugglega enda í fangaklefa ef hún þæði boðið!
Zac er jú 24 ára og en Eva 37!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig