Íslandsvinurinn Russell Crowe skildi við eiginkonu sína til níu ára stuttu eftir að íslandsför kappans lauk. Sú fyrrverandi, Danielle Spencer, var niðurbrotin eftir skilnaðinn, sérstaklega eftir að ýmislegt kom í ljós eftir heimsóknina á klakann.
Jú, þá kom meðal annars á daginn að Russell hafði verið í stanslausum SMS samskiptum við átján ára gamla íslenska stúlku og nokkuð hress á fleiri sviðum en hvort það var dropinn sem fyllti mælinn er ekki á hreinu. Skilnaðurinn kom hinsvegar sem þruma úr heiðskýru lofti þar sem hjónaband þeirra þótti vera eitt það traustasta í glysborginni.
Núna er komið nýtt ár og nýjir tímar. Russell er farinn að slá sér upp með engri annari en kynbombunni Ditu Von Teese sem er þekktust fyrir Burlesque sýningar sínar, sambandið við Marilyn Manson og ögrandi klæðnað, eða lítinn klæðnað.
Dita og Russell virðast þó einnig hafa eytt tíma saman í desember því þau fóru saman í paranudd á Four Seasons hótelinu í New York. Samband þeirra byrjaði með hnyttnum Twitter færslum á milli þeirra tveggja og hafa þau síðan verið að hittast annað slagið eftir net-daðrið. Dita er þó ekki fyrsta konan sem Russell hittir eftir skilnaðinn en hann hitti fyrrverandi eiginkonu naggsins Billy Joel í stuttan tíma.
Skilnaður Russell og Danielle gæti farið í hart þar sem að hún á rétt á hluta af eignum og peningum Russells en samkvæmt kaupmálanum þurftu þau að vera gift í þrjú ár til þess að hún fengi einhver eignarrétt og hjónaband þeirra varði í níu ár.
Nú er bara að bíða og sjá hvað gerist…
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig