Ok, við vitum að mamma þín er tískufíkill og þú ert eins og lítil designer dúkka en rauður varalitur? Er það kannski 2 much?
Suri Cruise var mætt með mömmu sinni Katie Holmes (32) á tískuvikuna í New York… klædd í bláan kjól, með bleikan hatt og eldrauðan varalit.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem barnið sést málað en hún hefur áður verið mynduð með mömmu sinni í Sephora þar sem hún dútlar við snyrtivörurnar.
Pabbi hennar, Tom Cruise (49) segist alveg sáttur við áhuga barnsins á snyrtivörum.
„Hún má klæðast því sem hana langar til. Ég ætla ekki að reyna að breyta henni. Hún er líka með mjög góðan smekk. Velur stundum fötin á mig“.
Já… það er spurning. Á að leyfa fimm ára stelpum að mála sig?
Lestu HÉR meira um börn sem fá að velja fötin sín sjálf.

Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.