Söngkonan Rihanna virðist hafa fyrirgefið og gleymt þegar Chris Brown lamdi hana í kle.. og skildi hana eftir í sárum sínum.
Mikið var fjallað um málið þegar þetta gerðist og Rihanna og Chris mættust í réttarsal. Í kjölfarið var sett nálgunarbann á Chris ásamt því að þau töluðust ekki við í langan tíma.
Nú er sambandið komið í allt annan farveg og Rihanna hefur Twittað myndir af sér og Chris og þau hafa sést mikið saman opinberlega, hvort sem það er úti á djamminu, á hóteli eða úti að borða.
Rihanna Twittaði mynd af sér og Chris í faðmlögum og hefur myndin fengið mikil viðbrögð. Ég var að horfa á þátt á slúðurstöð um daginn þar sem nokkrir viðmælendur komu við sögu og voru allir á sama málið að Rihanna væri bara að fara í sama farið og væri að gera stór mistök.
Við skulum samt sem áður vona að Chris muni ekki leggja hendur á hana aftur en nýjasta plata Rihönnu “Unapologetic” er nýkomin í verslanir og selst eins og heitar lummur.
Ferill hennar og frami er á mikilli uppleið og margir vona að samband hennar við Chris verði ekki til þess að aðdáendur snúi baki við henni.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig