Leikaraparið Ashton Kutcher og Mila Kunis hafa ekki farið leynt með samband sitt þrátt fyrir að hann sé ekki skilinn við Demi Moore á pappírum.
Parið sást á röltinu um síðustu helgi og hafa netheimarnir logað af sögusögnum að Mila sé ófrísk eftir að hún sást með “útblásinn” maga.
Leikkonan var í víðum röndóttum bol og ég er ekki viss hvort það var sniðið eða eitthvað en mallakúturinn virðist að minnsta kosti aðeins útstæðari, þau virtust að minnsta kosti alsæl tvö með lífið og tilveruna en þau hafa hvorugt farið leynt með það að þau vilji eignast fjölskyldu. Ashton á engin börn og Mila ekki heldur.
Mila sagði í viðtali fyrir stuttu síðan að sig langaði að fara að stofna fjölskyldu og að hún myndi frekar vilja eiga barn frekar en að leika í kvikmynd -hún fær alltaf annað hlutverk.
Við sjáum hvað setur, ég mun vakta netheimana næstu dagana til að fylgjast með framvindu mála.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig