Jodie Foster flutti ræðu á Golden Globe verðlaunahátíðinni síðustu helgi þar sem hún kom “opinberlega” úr skápnum.
Þegar Jodie flutti ræðuna beindust myndavélarnar reglulega að borðinu hennar en Mel Gibson sat þar ásamt drengjunum hennar tveimur. Jodie hefur aldrei gefið það út hver er barnsfaðir þeirra en nú hafa miklar spegúleringar verið á yfirborðinu og ónefndur “sérfræðingur” segir að drengirnir séu mjög líkir Mel, bara ljóshærðari.
Jodie og Mel hafa verið góðir vinir í mörg ár en þau kynntust þegar þau léku saman í kvikmyndinni Maverick. Jodie var ein af fáum sem stóð við bakið á Mel þegar líf hans tók snögglega U beygju vegna skilnaðar hans við hina rússnesku Oksönu en sá skilnaður var mjög ljótur og var fjallað mjög opinberlega um hann, Mel fór einnig illa út úr honum andlega og lét eins og óður maður væri á opinberum vettvangi og í viðtölum.
Jodie hefur ákveðið að segja strákunum sínum hver faðir þeirra er þegar þeir eru 21 árs gamlir en það er eitthvað sem hún ákvað þegar þeir voru litlir. Annar maður er þó einnig líklegur faðir drengjanna en það er Randy Stone en hann vann sem “casting director” eða sá um að ráða fólk í kvikmyndir. Hann lést árið 2007 úr hjartasjúkdómi.
Talsmenn Gibson og Foster hafa neitað að svara þessum fregnum en það verður spennandi að heyra hvað kemur í ljós.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig