Samkvæmt heimildum er söngkonan Lana Del Rey búin að landa nokkra milljóna króna samningi við tískurisann H&M sem að íslendingar ættu að kannast vel við. Heimildir herma að hún sé við tökur fyrir fatalínuna akkúrat núna.
Lana hefur reynt ítrekað að fegra ímynd sína eftir að hún klúðraði lagi sínu Video Games í sjónvarpsþættinum Saturday Night Live í janúar en margir vilja meina að þetta hafi verið hræðilegasta frammistaða söngvara í þættinum-úps!
Talsmaður söngkonunnar og H&M vildu ekki staðfesta fréttirnar en það verður án efa gaman að sjá dömuna í fatnaði frá sænska risanum, enda gullfalleg snót hér á ferð!
Smelltu HÉR til að skoða myndir og meira um Lönu Del Rey…
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig