Það hefur verið gaman að fylgjast með Emmu Watson vaxa úr grasi en þú manst eflaust eftir henni úr hinum vinsælu myndum um Harry Potter.
Hér má sjá myndaséríu af Emmu þar sem sést hversu glæsileg ung kona hún er og það verður gaman að fylgjast með henni á næstu árum í heimi stjarnanna…
Nýverið gerðist hún m.a. fyrirsæta fyrir Lancome en hún þarf þó lítið að hafa áhyggjur af fjármálum því Harry Potter myndirnar, og varningur þeim tengdur, mun halda henni í góðum peningamálum um ókomin ár.
Myndir teknar af TheBerry
Sigrún Þöll Þorsteinsdóttir (f.15 feb 1975 – d. 8 apríl 2014) bloggaði á Pjatt.is í rúmlega tvö ár.
Sigrún Þöll starfaði sem tölvunarfræðingur, var dellukona, tækjasjúk og fagurkeri af lífi og sál. Að eigin sögn fannst Sigrúnu gaman að hlaupa, hjóla, drekka kaffi, huga að heilsunni, prjóna, lesa, taka ljósmyndir, rækta garðinn sinn og fleira og fleira. Blessuð sé hennar minning. Sigrún verður ógleymanleg þeim sem kynntust þessari dásamlegu konu.