Elton John hefur aldrei farið leynt með hversu mikið hann fyrirlítur Madonnu og í nýlegu viðtali fær hún það aldeilis óþvegið frá bretanum.
Elton er mikill aðdáandi Lady Gaga en Madonna er sögð hata hana (hmmm… hvers vegna?).
“Hún er algjör martröð, þú verður að fyrirgefa, ferli hennar er lokið,” segir Elton um material stelpuna.
“Nýjasta tónleikaferð hennar hefur verið hrein og bein martröð og þessi hörmung hefði ekki getað komið frá stærri k**tu! Ef Madonna hefði eitthvað vit í kollinum þá hefði hún haldið áfram á sömu braut eftir að hafa tekið viðsnúning á ferlinum með Ray of Light. Þess í stað ákvað hún að fara í dans/popp tónlist og sanna það að hún er bara skemmtigarðastrippari. Hún kann nefnilega að gera góða popptónlist í anda Ray Of Light en hún þurfti að sýna sig og sanna að hún væri meiri en hún er.”
Elton hefur ekki þolað poppdrottninguna síðan Madonna hlaut Golden Globe verðlaun fyrir besta lagið. Elton var tilnefndur í sama flokki og þegar hún fékk verðlaunin sagði Elton: “Best song, fuck off!!”
Elton finnst gagnrýni Madonnu á Lady Gaga vera fyrir neðan allar hellur og sýni hversu örvæntingarfull og glötuð hún sé! Já það verður fróðlegt að sjá hverju poppdrottningin svarar eftir þessa gagnrýni Elton.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig