Bíbí man þá tíð þegar það þótti hreinlega hræðilegt að kynlífsmyndband með þér í aksjón kæmist í umferð á netinu.
Pamela Anderson varð með þeim fyrstu til að “lenda” í þessu og síðan hafa margir fetað í hennar fótspor. Til dæmis Paris Hilton, Kendra Wilkinson, Gene Simmons og Tila Tequila svo fáeinir séu nefndir.
Sumir gera jafnvel kynlífsmyndbönd viljandi eins og frægt varð með dóttur Lawrence Fishburn. Þá er kynlífsmyndbandið notað til að öðlast frægð og frama… það kemur þér á “kortið”.
Nú er það spurning hvort áhugasamir gerist bráðum svo heppnir að sjá slíkt myndband með söngkonunni svölu Rihönnu.
Að sögn talsmanna Hustler Magazine eru þeir með eitt slíkt undir höndum og þar á Rihanna að vera í miklu stuði með svipur og læti. Sá sem hún er að leika sér við á myndbandinu er enginn annar en J.Cole, rapparinn sem hitaði upp fyrir hana á síðasta tónleikaferðalagi.
Jidúddamía!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.