Það eru fáar ungar stúlkur sem eru jafn flottar og fyndnar eins og bresku dúllurnar Sophia Grace og Rosie.
Sjónvarpskonan Ellen Degeneres uppgötvaði þær á netinu en Sophie hefur afar gaman af því að syngja og gerir það afbragðsvel, Rosie fylgir henni hvert fótmál en hún er stuðningur Sophie, þær eru alltaf í prinsessukjólum og með kórónur og þær ELSKA bleikt!
Ellen sendir þær í allskonar verkefni og skemmtilegheit og hér að neðan má sjá þær fá sér tesopa með Justin Bieber.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=CIb49SXqNtE[/youtube]
Fleiri skemmtileg myndbönd af skvísunum má finna á Youtube.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig