Leikkonan Drew Barrymore eignaðist stúlku þann 26.september síðastliðinn.
Þetta er fyrsta barn Drew og eiginmanns hennar Will Kopelman. Hjónin gáfu út yfirlýsingu sem hljóðar svo:
“Við erum stolt að tilkynna fæðingu dóttur okkar Olive Barrymore sem fæddist þann 26.september síðastliðinn, stúlkan er heilbrigð, hamingjusöm og velkomin af allri fjölskyldunni. Takk fyrir að virða friðhelgi einkalífs okkar á þessari stóru stundu”.
Fallegt!
Til hamingju með stúlkuna.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig