Þrátt fyrir að vera skilin að borði og sæng hafa Ashton og Demi ekki fundið kjark til þess að sækja um skilnað opinberlega.
Heimildir slúðurpressunnar fullyrða þó að skilnaðarferlið sé í gangi og aðalmálið séu peningagreiðslur (hvað annað). Ashton er sem stendur hæstlaunaðasti karlmaðurinn í sjónvarpi og þénaði töluvert mikið á síðasta ári hjónabandsins.
Lögmenn hjónanna eru að gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að semja svo að málið fari ekki fyrir dómstóla -sem þýðir að réttarhöldin verða opinber en þá gæti allt farið í bál og brand.
Ashton heldur fast í budduna sína og neitar að borga Demi stóra fjárhæð en þau hafa örugglega skrifað undir kaupsáttmála sem segir til um borgun til hvors annars. Demi hefur hinsvegar verið ansi tekjulítil síðastliðin ár.
Ætli að þetta verði hatrömm deila á milli þeirra tveggja?
Demi er víst ekki sátt við að Ashton sé farinn að deita Milu Kunis og er sögð brjáluð yfir því hversu opinbert samband þeirra sé orðið.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig