Demi Moore er andlit snyrtivörurisans Helenu Rubenstein en það verður að segjast að hún er nær óþekkjanleg sökum photoshop.
Þessi gullfallega kona hefur verið að ganga í gegnum skilnað undanfarin misseri við Ashton Kutcher, nýkomin úr meðferð og allt hefur þetta gerst fyrir framan almenning og papparassanna.
Hún horaðist mjög hratt eftir skilnaðinn þrátt fyrir að hafa alls ekki verið mikil í holdum fyrir hann en hvort myndirnar eru teknar fyrir eða eftir skilnað er ekki gott að segja.
Í Bretlandi hafa auglýsingar sem eru augljóslega fótósjoppaðar og taldar gefa ranga ímynd bannaðar svo það er spurning hvort þessar verði leyfðar þar.
Myndirnar má skoða hér að neðan.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig