Leikkonan Demi Moore virðist ekki vita hvað snýr upp né niður í lífinu þessa dagana en hún eyddi jólavikunni í megrunarbúðum og lét alla kalla sig “Topper” á meðan á dvöl hennar stóð þar.
Megrunarbúðirnar eða “Weight Loss Camp” sem Demi sprangaði um í eru staðsettar í Mexíkó og að sögn heimildarmanna var Demi aðeins í leit að einu – UNGUM folum!
Það var víst allt morandi í heitum strákum sem vildu ekki láta jólaátið fara með sig og ákváðu því að fara í megrunarbúðir til að passa upp á línurnar. Demi leit bara á ungu strákana en lét þá eldri eiga sig sem voru víst nokkrir á svæðinu. Sjóvarvottar segja að hún hafi ekki einu sinni horft eða yrt á þá eldri.
Það sem kom flestum þó á óvart var að Demi vildi láta kalla sig “Topper” á meðan hún dvaldi í Mexíkó en nafnið kemur úr mynd frá árinu 1937 þar sem að Gary Grant lék aðalhlutverkið og lifði lífinu til hins ítrasta.
Aðrir gestir megrunarbúðanna sögðu að Demi hafi verið hálfpartinn eins og tvær manneskjur, annaðhvort var hún hátt uppi eða mjög langt niðri og drap hún stemmarann algjörlega á meðal hópsins.
Demi reyndi að njóta lífsins í botn með ungum folum á meðan hennar fyrrverandi skellti sér heim í heiðardalinn með nýju kærustunni. Spurning hvort hún sé ekki bara enn í rusli eftir skilnaðinn?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig