Demi Moore er komin aftur í slúðurfréttirnar og ekki eru það góðar fréttir sem eru að koma frá blessuninni.
Kærastinn hennar kornungi er víst búinn að segja henni upp og senda hana út með ferðatöskuna sína. Demi hefur einnig sýnt undarlega hegðun á rauða dreglinum og í partýum þar sem hún hefur verið ofurölvi og hreinlega til ama, öðrum gestum ekki til skemmtunnar.
Dætur hennar Rumer, Talullah og Scout eru nýfarnar að tala við hana eftir inngrip (intervention) þar sem að þær létu hana vita að þær hefðu gríðarlegar áhyggjur af henni og vilja reyna að koma henni aftur á beinu brautina. Demi hefur síðan farið í meðferð við neyslu og átröskun.
Demi virðist ekki taka neinu tali og heldur áftam að drekka stíft og djamma fram eftir nánast alla daga. Dætur hennar segja að hún hreinlega þrái athygli og geri hvað sem er til þess að fá hana. Þær hafa einnig áhyggjur af andlegri heilsu Demi en hún virðist ekki vera alveg eins og hún á að vera og þær eru með miklar áhyggjur af því hvað hún gerir næst.
Dætur hennar eru ekki þær einu sem hafa áhyggjur af Demi heldur hafa nánir vinir hennar einnig tekið eftir breyttri hegðun og vilja að hún fari á beinu brautina.
Við skulum vona að Demi fari að sjá að sér og fari að rétta úr kútnum, kannski ætti hún að byrja á því að fá skilnaðinn í gegn við Ashton og byrja upp á nýtt?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig