Leikkonan Demi Moore (49) hefur ekki átt sjö dagana sæla í einkalífinu upp á síðkastið.
Hún er nýskilin við Ashton eftir að upp komst um framhjáhald hans, dætur hennar hafa snúið baki við henni og hún hefur verið inn og út úr meðferðum en nú er sagan önnur.
Demi er sögð eiga í ástarsambandi við ungan leikara sem heitir Martin Henderson (37) en hann er þekktastur fyrir leik sinn í The Ring.
Parið hefur sést saman í Conneticut og hafa þau meðal annars verið úti að versla, farið í göngur, grill og haldið matarboð og er Demi ávallt með bros á vör þegar þau sjást saman.
Við skulum vona að lífið og tilveran fari að leika við Demi nú eftir nokkurra mánaða hrakfarir í einkalífinu.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig