Hin fimmtuga fegurðardís Demi Moore skildi við eiginmann sinn Asthon Kutcher (34) í fyrra með miklum látum og nú er hún sögð komin í samband við mikið yngri mann.
Það mun vera hinn 26 ára gamli Vito Schnabel, en faðir hans er hinn vel þekkti listmálari Julian Schnabel.
Parið kynntist fyrr í þessum mánuði. Þau voru bæði gestir í fimmtugsafmæli kærasta Naomi Cambell, milljarðamæringsins Vladimir Dornin. Veislan var haldin í Jodhpur á Indlandi. Heimildarmenn slúðurpressunnar vestra segja að parið hafi ekki geta haft hendurnar af hvort öðru:
“Þau dönsuðu erótískt og gátu ekki haft hendurnar af hvort öðru,” sagði sjónarvottur í viðtali við New York Post.
Og eftir þessi fyrstu kynni hefur parið eytt “rólegum tíma” saman burt frá sviðsljósinu.
Vito hefur áður verið með hinni 49 ára gömlu ofurfyrirsætu Elle Macpherson og Liv Tyler, sem er 35 ára.
Demi Moore er hinsvegar móðir þriggja stálpaðra stelpna sem hún á með Bruce Willis. Demi varð fimmtug þann 11. þessa mánaðar og hélt upp á það í Dubai.
Asthon Kutcher er nú byrjaður með hinni fallegu Milu Kunis og fer ekki leynt með það samband en Demi hefur verið að vinna í sjálfri sér eftir að hafa farið í meðferð snemma á árinu. Hún fór í meðferð vegna átröskunar, þreytu og ávanabindandi efna.
Við skulum samt vona að hún fari að ná sér á strik þessi fallega kona og gera eitthvað skemmtilegt þegar hún er komin á sextugsaldurinn.
Spurning um að finna sér mann sem er aðeins nær henni í aldri? Eða ekki?
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.