Ashton Kutcher er enn löglega giftur Demi Moore — en það hefur ekki truflað hann frá því að deita Milu Kunis í fimm mánuði!
Að sögn vina Demi Moore er hún frekar niðurbrotin yfir sambandi þeirra. Ashton og Mila höfðu þekkst árum saman og Demi finnst ekki gaman að hugsa til þess að hennar fyrrverandi sé byrjaður með konu sem hann þekkti allann tímann á meðan að á sambandi þeirra stóð.
Ashton og Mila eru í alvarlegu sambandi en þau kynntust við tökur á The 70’s Show þegar þau léku bæði í þáttunum og kunnugir segja að hann hafi alltaf verið skotin í Milu.
“Demi var alltaf óörugg yfir vinskap Ashtons og Milu meðan þau voru gift, þannig að já… það særir hana extra mikið að hann sé einmitt byrjaður með henni núna,” segir vinkona Demi.
Kutcher, (34) og Demi Moore (49) tilkynntu um skilnað sinn í nóvember í fyrra þegar upp komst um framhjáhald hans með 22 ára stelpu í Las Vegas.
Þau eru enn að vinna í skilnaðarmálunum enda þarf að hafa mikið fyrir skiptum þegar fólk á svo mikla peninga og að sögn heimildarmanna ætlar Ashton að fá sem mest út úr þessu.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.