Bandaríska leikkonan Demi Moore hefur grennst svakalega eftir að upp komst um framhjáhald eiginmannsins.
Eins og kunnugt er hélt Asthon Kutcher framhjá Demi á sex ára brúðkaupsafmæli þeirra með stelpu sem er meira en tuttugu árum yngri en Demi. Þau fóru saman í heitan pott og voru víst í mjög góðum fílíng.
Eðlilega hefur framhjáhaldið fengið svakalega á Demi Moore og nú gerir hún víst ekkert annað en að horast niður. Hún mætti á frumsýningu í New York fyrir myndina Margin Call en það er fyrsti atburðurinn sem hún fer á opinberlega eftir að upp komst um karlinn.
Fólk tók eftir því að Demi hafði grennst rosalega mikið en hún var þó enn með hringinn sinn. Hún bar sig vel og virtist vera í fínu skapi en vinir hennar tala um að hún hafi nánast ekkert borðað eftir að þetta komst upp.
Fólk tók eftir því að Demi hafði grennst rosalega mikið en hún var þó enn með hringinn sinn. Hún bar sig vel og virtist vera í fínu skapi en vinir hennar tala um að hún hafi nánast ekkert borðað eftir að þetta komst upp.
Demi sleppti því að mæta í eftirpartý eftir frumsýninguna og dreif sig bara heim. Eiginmaðurinn kom líka í fyrsta sinn fram opinberlega eftir skandalinn nú um helgina þar sem hann tróð upp á góðgjörðarsamkomu á vegum Bill Clinton í Hollywood. Hann var hinn hressasti og talaði m.a. um DNA Foundation góðgjörðarsamtökin sem hann stofnaði með Demi Moore, eiginkonu sinni. Ashton var líka með hringinn.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.