Hér skrifaði ég um nýjustu nærfatalínu David Beckham og HM og hefur David sjálfur verið duglegur að setja inn myndir úr tökunum undanfarið.
David sagði þetta um samstarf sitt við tískurisann H&M:
“Ég vildi sýna fram á styrk og gæði David Beckham Bodywear með þessum myndum, einnig úrvalið og sniðin. Ég elska hvað við erum með mikið úrval af nærfatnaði og mér líður vel í hverri og einni flík. Það er orðinn sjálfsagður hlutur að ganga í þessum nærfötum á hverjum degi.”
Hann setti einnig myndir af styttunni góðu sem er eftirlíking af kroppnum á brókinni einni fata…….slef!
Hér að neðan eru myndir af hasarkroppnum í nærfötunum, njóttu vel!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig