Í tilefni Ólympíuleikanna sem haldnir verða í Lundúnum í sumar prýðir knattspyrnumaðurinn David Beckham forsíðu júlí tölublaðs Elle í Bretlandi…
…Hann er þess heiðurs aðnjótandi að vera fyrsti karlmaðurinn sem prýðir forsíðuna einn síns liðs. Ritstjóri blaðsins segir hann vera nokkurs konar táknmynd og þjóðhetju.
Í blaðinu er viðtal við Beckham þar sem hann ræðir meðal annars um fótboltalífið og peningana sem fylgja íþróttinni, föðurhlutverkið og hversu stoltur hann er af Victoriu-eiginkonu sinni.
Hér að neðan má sjá nokkrar vel valdar myndir af herra Beckham.
Njótið!
_____________________________________________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig