Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni og stundum getur verið æðislegt að eiga ríkan og frægan pabba…
…Sérstaklega ef þú fékkst slatta af hæfileikunum hans í vöggugjöf enda er það ekkert öðruvísi með selebbana eða okkur hin, við erum öll afsprengi foreldra okkar með góðu og illu. Erfum suma jákvæða hæfilega og getum líka verið pirrandi eins og þau.
Hér eru nokkrar flottar pabbastelpur sem fengu aðeins meira en Paris Hilton frá sínum pabba, það er að segja hæfileika sem eru talsvert meira virði en peningar.
Georgia Jagger, Sophia Coppola og Stella McCartney eru meðal þeirra ungu kvenna sem hafa komist áfram á eigin verðleikum (með smá vindi í frægðarseglin frá pabba gamla).
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.