Dætur Demi Moore eru ekki ánægðar með móður sína eins og lesa má hér og íhuga þær núna að sækja um að fá á hana nálgunarbann.
Demi hefur reynt allt sem í hennar valdi stendur til þess að hafa samband við dætur sínar þær Rumer, Tallulah og Scout.
Hún sendir þeim tölvupósta, skilur eftir skilaboð á símsvaranum og sendir þeim SMS skilaboð. Allt kemur fyrir ekki og stúlkurnar neita að vera í sambandi við hana.
Þær eru að sögn ekkert að sækja um nálgunarbannið upp á grín -þær vilja frið og ró og minni dramatík í lífi sínu.
Demi greyið hefur átt erfitt ár, Ashton hélt framhjá henni, hún er búin að ganga í gegnum skilnað, fara í meðferð og á við hin ýmsu vandamál að stríða sjál.
Kannski ættu dæturnar að halda betur um móðir sína frekar en að ýta henni frá sér? Það er fátt hægt að segja þegar maður sjálfur á ekki í hlut og þekkir ekki aðstæður.
Við skulum vona að þessi glæsilega kona fari að rétta úr kútnum og komi eins og stormsveipur til baka á sjónarsviðið í Hollywood. Það væri þá ekki í fyrsta sinn sem Hollywood stjarna snýr við blaðinu með glæsibrag.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig