Dætur Demi Moore þær Tallulah, Rumer og Scout eru búnar að fá meira en nóg af móður sinni þessa dagana.
Þær hafa staðið við bakið á henni undanfarið vegna skilnaðar hennar við Ashton Kutcher og studdu hana þegar hún kom úr meðferð -en núna er víst komið nóg.
Stelpurnar vilja samkvæmt heimildum fá móður í staðinn fyrir vinkonu en Demi er víst afar þurftarfrek og dæturnar orðnar hræddar um að Demi sé á leiðinni aftur í meðferð. Þeim finnst erfitt að horfa á hana svona ósjálfstæða og vilja að hún fari að taka sér tak.
Rumer, Scout og Talullah eru einnig góðar vinkonur Ashton sem (nánast) gekk þeim í föðurstað þegar þau voru gift (þó það sé ekki mikill aldursmunur þar á milli) og var hann stór partur af lífi þeirra sem þær eru ekki tilbúnar að sleppa hendinni af. Þær halda því enn sambandi við hann.
Dropinn sem fyllti mælirinn var þegar Demi mætti í útskrift Tallulah en þær voru búnar að biðja hana að vera heima þar sem ástand hennar er of óstöðugt. Eftir útskriftina varð heljarinnar rifrildi og ákváðu stelpurnar að taka sér smá hlé frá móðir sinni þar til hún myndi bæta sitt ráð.
Annars virðast vera vandræði á fleirum en Demi því útskriftarbarnið, sem er átján ára, kom við sögu í nektarmyndaskandal en slíkar myndir eiga að hafa lekið út af henni á netið þar sem hún er einnig að reykja jónu!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig