Tæknilega séð ætti að vera erfitt að skyggja á frægðarsól Söru Jessicu Parker en þetta gerði Christina Hendricks þegar hún mætti í bombukjól dauðans á frumsýningu myndarinnar I Don’t Know How She Does It í New York.
Allra augu voru á dömunni þar sem hún mætti í rosalegum bleikum satín kjól frá Vivienne Westwood, með demantseyrnalokka og armband. Kjóllinn gerði ekkert nema undirstrika barminn sem er jú verulega góður fyrir.
Christina hefur áður látið hafa eftir sér að það sé “stórskrítið” að fólk skuli reglulega spyrja hana hvort brjóstin séu ekta. Í viðtali við Daily Mail sagði hún að brjóstin væru…
“svo augljóslega raunveruleg að hver sem hefur séð eða snert brjóst ætti að sjá það.”
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.