Christina Aguilera hefur vakið mikla athygli undanfarið og ekki endilega góða.
Fyrst tóku menn eftir því hvað daman hafði bætt mikið á sig en nú vekur það furðu hvernig hún klæðir sig. Um daginn skrapp hún á deit í engu öðru en stuttermabol og netasokkabuxum en nú sást til hennar koma út úr verslun, klædda í ekkert nema nælonsokkabuxur og aftur, bol.
Jú, hún var reyndar með rauðan trefill og derhúfu.
Vinkona hennar var mikið betur klædd, í víðar buxur og rokkarajakka í 80’s stíl. Stelpurnar voru að koma út úr undirfataverslun. Kannski nennti Aguilera ekki að klæða sig í of mikið áður en ráðist var í að máta?
Það er harla ólíklegt að þessi stíll eigi eftir að ná miklum vinsældum með þessum hætti þó að sokkabuxur og grófar peysur hafi vissulega verið vinsæl átfitt á árunum upp úr 1955-65.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.