Söngkonan Christina Aguilera kom fram í spjallþætti Chelsea Handler “Chelsea Lately” á dögunum þar sem hún viðurkenndi að hún fíli ekki nærföt.
Christina hefur verið mikið rædd og gagnrýnd í þætti Chelsea og hún ákvað að koma í þáttinn með einu skilyrði -að Chelsea yrði líka nærbuxnalaus, Chelsea leið ekkert alltof vel á meðan Christina dásamaði það að vera nærbuxnalaus og sagði að það veitti sér ákveðið “pu**y power”!
Christina bætti því við að hún þyrfti að vera eins frjáls og hún mögulega gæti, þannig væri hún bara hún væri svolítið fiðrildi í sér sem myndi fljúga frjálst.
Söngkonan hefur svo sem ekki farið mikið leynt með það að henni líði best þegar hún er allsber og á sunnudögum ef hún þarf ekki að fara neitt -þá er hún allsber allan daginn heima hjá sér!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig