Christina Aguilera hefur verið undir smásjánni hjá slúðurpressunni vegna þess að hún hefur bætt á sig nokkrum kílóum.
Christina segist þreytt á þessu umtali og í viðtali við Billboard sagði hún að henni hafi liðið afar illa þegar hún var sem grennst árið 2002 en hún bætti nokkrum kílóum á sig eftir það og þá varð allt vitlaust hjá útgáfufyrirtækinu! Hún var kölluð á fund og sagt að grenna sig og það strax því annars væru störf margra í hættu.
Christina segist hafa verið það ung og óreynd á þessum tíma að hún gerði nákvæmlega það sem plötu og útgáfufyrirtækið sagði en leið þó ekki vel að vera svona grönn.
Núna eru liðin tíu ár síðan, Christina er orðin mamma og fagnar lögulegum línum sínum, hún segir einnig að fólk verði að átta sig á því að hún sé “feita stelpan” og það er rödd hennar sem skiptir máli -ekki líkaminn. “Jafnið ykkur á því!”
Christina er að vinna að nýrri sólóplötu sem ber nafnið Lotus og platan mun vera gefin út þann 13. nóvember næstkomandi.
Það verður spennandi að fá að heyra nýju plötuna hennar en Christina hefur ákveðið að hætta sem leiðbeinandi í þáttunum “The Voice” til þess að fylgja plötunni sinni eftir.
_________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig