Christina Aguilera fékk að heyra það m.a. frá Kelly Osbourne að hún væri orðin feit en stjarnan lætur það lítið á sig fá og segist elska sjálfa sig eins og hún er.
Söngkonan segist hafa fullkomnast við það að verða móðir en henni finnst frábært að upplifa hvað kvenlíkaminn fer í gegnum við það að ganga með og fæða barn. Henni finnst líka æðislegt að eldast og segist mjög sátt við að vera móðir á fertugsaldri.
“Sumir eru hræddir við að eldast og breytast og upplifa það sem eitthvað slæmt en ég elska hreinlega að eldast og verða vitrari,” segir poppstjarnan og mamma drengsins MAX sem er fjögurra ára. “Og það var mögnuð reynsla að ganga með barn og sjá hvað líkami konunnar er magnaður,” bætir hún við.
Christina segist aldre hafa flækt málin með sjálfa sig. Hún sé bara sú sem hún er og annaðhvort verði fólk að elska hana eða hata. Það sé ekki hennar mál.
“Ég fagna líkamanum mínum og öllu sem mér fylgir. Að komast á þennan ‘stað’ er yndislegur áfangi sem ber að fagna. Ég fagna frelsinu og hamingjunni sem þessu fylgir,” segir Christina en þetta er einmitt meginþema næstu plötu hennar sem hefur fengið nafnið Lotus.
Christina er nakin á umslaginu en hún segist ekki upplifa það sem nekt:
“Mér finnst reyndar ekki sjást mikið í mig og upplifi þetta ekki sem nekt. Myndin á að tákna frelsi og fögnuð yfir hvíta ljósinu, mig langaði ekki að gera ‘cover’ sem snerist of mikið um tískuna. Vildi hafa það hrátt, raunverulegt og frjálsa gleði yfir lífinu og þeirri konu sem ég er orðin í dag!”
Flott hjá Christinu enda um að gera að konur fagni lífinu og sjálfum sér í stað þess að brjóta niður. Góð fyrirmynd!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.