Chris Brown er endanlega búinn að toppa sjálfan sig í ömurlegheitum en maðurinn hefur nú fengið sér húðflúr af konu sem búið er að lemja á hálsinn.
Húðflúrið líkist Rihönnu ótneitanlega mikið en hann gekk mjög illa í skrokk á henni árið 2009 og hlaut dóm fyrir. Chris neitar því þó alveg að þetta eigi að vera hún en sitt sýnist hverjum og myndirnar tala sínu máli.
Uppi hefur verið sá orðrómur að Chris og Rihanna séu farin að stinga saman nefjum aftur en hún viðurkenndi í viðtali við Opruh að bera enn tilfinningar til ofbeldismannsins. Gersamlega óskiljanlegt fólk ef þú spyrð okkur og Rihanna gerir lítið úr sjálfri sér sem góðri fyrirmynd ungra kvenna með því að svo mikið sem tala við þennan vitleysing aftur…
…en svona er víst mannfólkið… ófyrirsjáanlegt og skrítið eins og Björk söng hér um árið.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.