Söngvarinn Chris Brown var heldur betur á milli tannanna á fólki fyrir fjórum árum þegar Grammy verðlaunahátíðin var haldin en þá var það vegna þess að hann lagði hendur á þáverandi og núverandi kærustu sína Rihönnu.
Í gær var Chris að forða sér undan papparössum sem þyrptust að honum þegar hann ætlaði að fara að stíga út úr bílnum sínum.
Chris leist ekkert á áganginn í blaðamönnunum og ákvað því að bakka í burtu á frekar miklum hraða sem endaði með því að hann bakkaði fyrir bíl.
Bíll söngvarans gjöreyðilagðist en enginn slasaðist.
Það er ekki langt síðan að papparassi lést þegar hann var að elta söngvarann Justin Bieber í Los Angeles en atvikið í gær átti sér einnig stað í LA þar sem ágangur blaðamanna virðist vera orðinn þannig að stjörnurnar eru farnar að óttast um líf sitt.
Grammy verðlaunin verða haldin hátíðleg í kvöld, fylgstu með kjólunum, verðlaunahöfunum og slúðrinu frá hátíðinni hér á PJATT.is!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig