Rapparinn Chris Brown sást kela við söngkonuma Nicole Scherzinger á næturklúbbi í Los Angeles fyrir stuttu.
Nicole er þekktust fyrir það að vera aðalsöngkona The Pussycat Dolls og hún hefur einnig verið dómari í breska X-Factor.
Daman var áður með Formúlu eitt ökuþórnum Lewis Hamilton en þau hættu saman fyrir stuttu. Chris er hingvegar nýhættur í sambandi við fyrrverandi kærustu sína sem twittaði “the end” í síðustu viku.
Sjónvarvottar segja að Nicole og Chris hafi verið að dansa afar nálægt hvort öðru, snertandi og káfandi og eftir það enduðu þau í hörkukeleríi! Myndir náðust af þessu öllu saman og stóru slúðurritarnir vestanhafs eru búnir að fjalla um keleríið! Rihanna er ekki sátt við kappann og setti inn mynd á Twitter sem á stóð:
“Ekki eyða tíma í að hafa áhyggjur af fólki sem hefur ekki áhyggjur af þér”.
Ætli Nicole og Chris séu nýtt par í glysborginni eða ætti Nicole bara að láta hann í friði? Kannski að þetta verði sagan endalausa og Twitterstríð á milli þeirra þriggja?
Fylgstu með, framhald síðar…
_______________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig