Vandræðagemlingurinn Chris Brown hefur gefið út myndband sem nefnist “The Real Chris Brown” en þar játar hann meðal annars ást sína á Rihönnu.
Hann segir meðal annars í myndbandinu:
“Ég er mjög stressaður, þegar þú deilir fortíð og sögu með einhverri ákveðinni manneskju en verður síðan ástfanginn af annari, þá flækjast málin verulega. Er hægt að elska tvær manneskjur á sama tíma? Ég er ekki viss, kannski.”
Já!?
Fyrrverandi kærasta Chris (sem hann er nýhættur með) Twittaði þetta eftir að hún sá myndbandið:
“Hvað í fjan**** gengur á!? Ég meina þú spilar ekki með tilfinningar fólks, þú bara gerir það ekki! Lífið heldur áfram, lifum því áfram!”
Fyrr í vikunni sagði Chris að hann ætlaði að einbeita sér af framanum og vera einn um tíma. Hann sagðist elska sína fyrrverandi afar heitt og vildi ekki sjá hana þjást vegna vináttu sinnar og Rihönnu -þá vill hann frekar vera einn þannig að þau geti bæði verið hamingjusöm.
Hér að neðan getur þú séð játningar Chris eða “The Real Chris Brown”… eins og hann kallar sig.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=oEALkNCv4og[/youtube]
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig