Þrátt fyrir að mikil leynd hvíli yfir upptökum á kvikmyndinni Promotheus sem fara fram hér á landi í sumar þá leka þær fregnir út að Charlize Theron hafi hagað sér eins og versta díva.
Ég veit ekki afhverju ég er hissa, það virðst fylgja hollívúdd leikkonum þessi dívustimpill og maður heyrir fáránlegar kröfur þeirra um hvað á að vera til taks á tökustað ofl. En ég hélt að Charlize Theron væri töffari…svo segir sagan að hún hafi verið voða vælin og kvartandi og vildi fresta tökum vegna örlítillar hálsbólgu..
Charlize var líka meinilla við Noomi Rapace og töluðust þær ekki við nema rétt svo við tökur. Charlize lokaði sig ein af í hjólhýsinu en Noomi Rapace var bara eðlieg, vinsamleg og félagslynd. Ekki leiðinlegt heldur að Noomi talar íslensku og lítur á landið okkar sem sitt annað heimili.
Ridley Scott kvartaði sáran undir stjörnustælum Charlize en lofaði alla íslensku starfsmennina sem komu að tökunum.
Það er frábært að hann var ánægður með “okkur” og vonar maður að hann og aðrir Hollywood-stórlaxar haldi áfram að koma og taka upp myndir hér, því það er ekki slæmt að fá þær tekjur inn í þjóðarbúið.
Svo þegar Promotheus verður frumsýnd þá munu eflaust Ridley, Charlize og Noomi lofa hvort annað og segjast vera svaka góðir vinir öll og stilla sér upp á rauða dreglinum saman með “ekta” colgatebros því þannig gengur það fyrir sig í Hollywood 😉
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.