Leikkonan Charlize Theron er við tökur á kvikmyndinni “Mad Max” um þessar mundir og er snoðklippt með hárið ólitað og það verður að segjast að leikkonan ber klippinguna vel.
Charlize fór með mömmu sinni um helgina í bíó í glysborginni en þær mæðgur eru afar nánar.
Charlize var algjör gella í svörtum leðurjakka með sólgleraugu, ljósbláum buxum og flatbotna skóm. Charlize var ekkert að fela hárið sitt enda fer það henni mjög vel svo það er ekkert tilefni til þess.
Charlize er afar spennt fyrir hlutverki sínu í Mad Max og hafði þetta að segja um það:
“Mér finnst upprunalega Mad Max myndin svo frábær og þar var skapaður svo sérstakur heimur, ég fer mikið til baka í þá mynd til að skoða það og er eins og lítið barn í sandkassa. Skemmti mér svo vel við það að rifja upp hvernig gamla myndin var gerð.”
Það verður gaman að sjá myndina með Charlize en hún er einstaklega flott leikkona og gaman að sjá hana í framandi hlutverki.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig