Leikkonan Charlize Theron hefur snoðað hár sitt fyrir hlutverk í kvikmyndinni “Mad Max 4: Fury Road”.
Það er óhætt að segja að leikkonan sé glæsileg með hárið svona snoðklippt en hún hefur áður gengist undir breytingar fyrir kvikmynd. Þá sérstaklega þegar hún bætti töluvert á sig fyrir kvikmyndina “Monster” (sem hún hlaut Óskarinn fyrir) og var mjög ólík sjálfri sér.
Charlize hefur sagt það áður að henni finnist það æðislegt að þurfa ekki alltaf að vera “sæta stelpan” þegar hún er að leika í kvikmyndum og finnist frábært að geta “falið” sig í karakternum sínum.
Nýjar fréttir af kvikmyndinni eru þær að Tom Hardy sá sem lék Bane eftirminnilega í nýjustu Batman myndinni mun taka við aðalhlutverkinu af Mel Gibson. Ekki amalegt að fá slíkan hönk í kvikmyndina!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig