Árlega útnefnir tímaritið People kynþokkafyllsta karlmann ársins og í ár er það enginn annar en Magic Mike leikarinn Channing Tatum.
Sögusagnir voru komnar á kreik fyrr í vikunni að Channing yrði fyrir valinu en blaðið vildi ekkert staðfesta þannig að þetta var ekki mikið leyndarmál.
Sjálfur er herra Tatum steinhissa á þessu öllu saman og sagði bara að það væri verið að stríða honum eða eitthvað, meira að segja konan hans var hissa en hann er giftur leikkonunni Jennu Dewan Tatum.
Channing fetar í fótspor Brad Pitt, Bradley Cooper og George Clooney en þeir og fleiri til hafa hlotið þessa nafnbót á undan honum.
Jenna var alsæl með valið á kynþokkanum og kallar eiginmanninn núna herra sexý!
Jenna segir einnig að fólk þekki hann sem fyndinn og sexý gæja en hann er samt svo jarðbundinn og mikil tilfinningavera og það sem þú sérð er það sem þú færð -hann er ekki að leika neitt hlutverk þegar hann hittir þig, er bara hann sjálfur. Það er sexý.
Skoðaðu myndir af kynþokkafyllsta karlmanni heims hér að neðan.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig