Kynþokkafyllsti maður heims á aldrei eftir að leika Christian Grey ef taka á mark á yfirlýsingum hans um að vera núna komin í pásu frá því að leika.
Líklegast eru margar konur að gráta í koddann sinn yfir þessari yfirlýsingu enda voru þær sömu að vona að hann myndi taka að sér hlutverk Christians Gray í 50 Shades.
Og þó… leikarinn (fyrrverandi) á að hafa sagt að hann vildi ekki leika Christian nema konan hans fengi að leika Önu.
Greinilega sjúklega afbrýðissöm eiginkona og fær mann til að hugsa hvort hún sé kannski á bak við þessa ákvörðun hans. Maðurinn var jú nýlega kosinn kynþokkafyllstur í heimi og það af góðri ástæðu.
Kannski ætlar hann ekki að leika áfram af því samkvæmt slúðurpressunni vestra á að vera búið að velja leikarann í hlutverk Christians, þó ekki hafi verið staðfest hver það á að vera (en líklegast Ryan Gosling).
Smelltu HÉR til að skoða fleiri kynþokkafullar myndir af Channing.
Að sögn leikarans ætlar hann að reyna að leikstýra frekar en að leika. Það eru auðvitað skelfileg vonbrigði fyrir aðdáendur hans því við viljum algjörlega hafa hann fyrir framan myndavélina, ekki aftan!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.