Maður var handtekinn vegna gruns um innbrot á heimili Celine Dion í Kanada í fyrradag.
Celine Dion og manninum hennar brá aðeins þegar þau komu heim til sín um dagin. Þau mættu gaur í tröppunum á leið niður stigann.
Gaurinn var með munninn fullan af mat og sagði bara “Hæ, hvað segiði”…
Daniel Bedard (36) braust inn á heimili hjónanna með fjarstýringu að bílskúrshurðinni en hana fann hann í ólæstum bíl fyrir utan. Spurning hver skildi hana eftir? Kannski garðyrkjumaðurinn.
Þjófavörnin fór í gang en Daniel var bara slakur, lét renna í bað og fékk sér gott að borða úr ísskápnum. Hann hefur örugglega þurft á því að halda. Hvaða þjófur gerir svona? -Jú, kannski Lalli Johns?
Hann var handtekinn á staðnum og kærður fyrir m.a. innbrot og skemmdir á eignum; svo var hann sendur á geðdeild þar sem hann fór í smá tékk en var sleppt á fimmtudagsmorgun.
HÉR er önnur mynd af húsinu og lóðinni í kring. Rosalegt.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.