Leikkonan Cameron Diaz er fertug en ber aldurinn vel og gefur ungu skvísunum í glysborginni ekkert eftir.
Daman er á forsíðu Esquire Magazine UK í nóvembermánuði og það var enginn annar en hinn umdeildi Terry Richardson sem tók myndirnar af Cameron.
Cameron líður afar vel með að vera orðin fertug og segist loksins vera orðin róleg. Hún sé afar spennt fyrir því að eldast og sé mun vitrari núna en fyrir nokkrum árum síðan. Hún er þakklát, þekkir sjálfa sig betur og henni finnst hún vera fær í flestan sjó -hún segir einnig að sér líði betur núna en þegar hún var 25 ára.
Cameron hefur aldrei farið leynt með það að vilja ekki gifta sig strax. Hún segist einfaldlega ekki hafa verið tilbúin í giftingu þegar hún var á tvítugs eða þrítugsaldrinum.
Þegar kemur að karlmönnum vill Cameron hafa þá sterka og hún kýs mann sem hugsar vel um sjálfan sig, henni finnst fátt æðislegra en að heyra að einhver hafi fundið hinn eina rétta og sé trúlofuð, það gleður hana að heyra um ástir annara… já?
Cameron er barnlaus og segist enn ekki langa til að verða móðir. Þó hún sé orðin fertug þá finnst henni hún langt frá því að vera runnin út og aldrei að vita hvað gerist í framtíðinni.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig